Sumarið er tíminn..
Myndir 2004
31.12.2007 20:09:12 / Kolbrún Ýr

Jólin

 

Jæja stelpur,

      Nú eru jólin komin og farin og nýja árið að ganga í garð. Þar sem enginn hefur tekið það að sér að blogga siðustu mánuði þa ákvað ég, bloggarinn hinn mikli, að taka af skarið.

Hvernig voru jólin hjá ykkur?

 Mín voru fín, eins og alltaf, fékk góðann mat, flottar gjafir og fínan jólakjól;)

Áramótin í ár eru mér ekkert tilhlökkunarefni. Er loksins búin að fatta það að þetta er bara eins og hver önnur djamm helgi nema að það verða allir borgarbúar í 101 og raðirnar inn á skemmtistaðina og til að ná í leigubíl, verða enn lengri en vanalega.

ég læt þó ekki deigan síga og skella mér í bæinn. ég ætla hvorki á ballið á nasa né á brodway heldur ætlum við stöllur að skella okkur bara á gott pöbbarölt. Það verður líklegast mjög skemmtilegt að vanda.

 

Nýja árið byrjar ágætlega vel. Vinnan tekur við 1 janúar - er ekki ýkja spennt fyrir því- en svo heldur gamanið áfram 2. janúr:D

 

Endilega bloggið nú smá stelpur, þið verðið að taka þetta upp aftur, þetta er svo gott njósnarakerfi;)

Að lokum segi ég því bara gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár, takk fyrir góðar stundir á liðnu ari.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 14:35:05 / Harpa

Loksins eitthvað nýtt

Nokkrar Myndir Komnar FFuerte !! :haha:

Einnig sett ég myndir frá Þjóðhátíð!

Skál fyrir því !!

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 12:57:33 / Harpa

SPICE UP YOUR LIFE !!

Ég legg til að við kíkjum til London í desember og skellum okkur á tónleika með uppáhalds vinkonum mínum ;) hehe, endurupplifa gömlu góðu tímana! :P

Ég er allavega orðin æst í þetta!

Ég er svo búin að setja 6 myndir frá Fuerte inn... það er kannski ekki mikið en það er byrjun :D

Svo erum við Magga búnar að plana kaffara í kvöld fyrir ykkur sem langar að koma..


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 16:24:36 / Magga

hoj

hvað segiði þá?

Hvað er planið hjá ykkur um versló? Ruth og þið hinar? eins og þið kannski vitið þá fer ég Harpa og Raggy til EYJA:D En já ég vil nýta tækifærið og þakka Ragnhildi fyrir ýkt skemmtilegt afmæli það endaði allavega í skrautlegum kanti hjá mér hehe;) hvað er annas planið hjá ykkur næstu helgi?? djamm, vinna eða útilega??

Endilega kommenta... skemmtilegra að kíkja á síðuna þegar eikkur bloggar eikkað ;)

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 10:05:49 / Ragnhildur

Afmælispartý

jæja stúlkukindur þá er loksins komið að partýi ársins!!=)

ég og guðjón ætlum að halda afmælin okkar á laugardaginn kl. 21:00 á hverfisbarnum og ykkur er öllum boðið!!!

og ég ætla líka að vera með smá hitting heima hjá mér fyrir ykkur þannig ef þið eruð ekkert að gera á laugardaginn þá verð ég byrjuð djúsa sona um fimm leytið;)og þið megið endilega joina mig í því!!hehe en annars komiði bara þegar þið getið!!

hlakka til að sjá ykkur allar=)

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 18:30:49 / Harpa

Tími á blogg?

Hola 8)

Já við erum komnar heim þótt að enginn bloggar neitt.... 

En ég ætla ekki að skrifa ferðasöguna hérna, myndirnar tala sínu! ;) Ferðin heppnaðist mjög vel og var ótrúlega skemmtileg í alla staði þótt að það var rosalega gott að koma heim!

Myndirnar eru frekar margar og mínar eru eiginlega bara af djamminu en þær koma smám saman núna eftir helgina :) Hins vegar setti ég myndirnar hennar Láru hingað inn svo þið getið farið að skoða og fá smá hugmynd um hvað þið fáið að sjá! :)

En út í annað....

 Stelpur, langar ykkur til eyja um verslunarmannahelgina? ;)


Mig langar allavega rosalega mikið!

Commentiði nú!

» 17 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 14:59:06 / Ruth

blogg hvað?

jæja skvísur, ég sé að það eru allir hættir að blogga á þessari síðu ;)

En ég læt reyna á eina færslu.
Velkomnar allar heim úr útskriftarferðinni, ég er búin að heyra að þetta var skrautleg ferð :) Mig er soldið farið að langa að hitta ykkur, kannski séns um helgina..?

 Endilega kommentið og segið að þið séuð lausar og við getum hist =)

 

p.s á ekki að setja inn myndir úr ferðinni?? 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 22:41:30 / Ruth

Finn ekki símann!!!! :(

hæ sætu skvísur,

ég sendi hér inn færslu til þess að óska ykkur góðrar skemmtunar úti.
Ég ætlaði að hringja í ykkur en ég finn ekki heimasímann og  er innistæðulaus á hinum. (ég held að birnir hafi tekið heimasímann með sér í veiði.   :(

 

Allavegana góða skemmtun úti og hlakka til að sjá ykkur brúnar og sætar!!!

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 18:12:04 / Ruth

GRADUATION!!!!!!!!!!!!!!!!! =)

Jæja skvísurnar mínar, þá fer að líða að útskriftinni! :)

Ég er svo spennt fyrir ykkar hönd, og er ekkert smá stolt af ykkur!    Ég get heldur ekki beðið eftir að hitta ykkur annað kvöld í bænum, vona að við getum hist sem flestar. ;)
Ég vildi að ég gæti komið í útskriftarathöfnina og sjá ykkur en ég er uppi í Grímsá og kem í bæinn um 3 leytið á morgun.

Annars langaði mig til að óska ykkur til hamingju með að vera búnar með framhaldsskólann og að hafa klárað hann með stæl(maður átti ekki von á öðru) :) og ég hlakka til að sjá ykkur á morgun.

 Góða skemmtun á morgun og njótiði dagsins!!

 Luv y´all!!!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 16:08:06 / Magga

EINKUNNIRNAR KOMNAR Á NETIÐ!!

já einkunnirnar eru loksins komnar... ég er bara mjög sátt með mínar :D hæstu einkunnirnar mínar úr versló hingað til hehe en nóg með það ... ætlaði bara að láta ykkur vita að þær væru komnar inn.. :) sjáumst síðan í kvöld8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 14:45:33 / Harpa

Betra seint en aldrei !!

Halló!!

Jæja, þá er maður loksins búin í prófunum, komin í sumarfrí og orðin veik!
Það er ekkert minna...

Allavega, ég ætlaði ekki að vera að kvarta hér heldur pointið í þessu bloggi er að segja ykkur Frakklandsfarar að myndirnar mínar frá Parísarferðinni okkar í páskafríinu eru loksins komnar inn! ;) Ég ætla svo líka að fá myndirnar frá Önnu, Rúnu, Hófí og Ellen til að setja inn þannig að þetta fer allt að koma! :D

Og fyrir ykkur hin þá fara hinar myndirnar sem ég hef tekið líka að streyma inn enda kemur þetta allt saman þegar maður er búin í prófunum...

Svo er bara útskriftin á laugardaginn og ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur útskriftarstelpur sætar og fínar með þessar smart húfur undir stjórn Árna Hermanns ;)

Kveð í bili, Harpa

Skál!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 09:38:55 / Ruth

kaffihús,hittingur, whatever

hæ skvísur,

var að spá hvort tið væruð til í kaffihús á mið. eða fimmtudag?? 


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 15:26:00 / Harpa

LOKSINS !!

Til hamingju Ísland!!!

Ég er þá loksins búin í prófunum ;)

Og það er DJAMM í kvöld!! 

Stelpur hlakka til að sjá ykkur í kvöld :P 

Hvítvín, rósavín og freyðivín í boði með matnum JÁJÁJÁ !!

 

kv. ein æst!!! 

P.S. myndir eru svo væntanlegar á næstunni LOKSINS ;)

 

P.S.2. af hverju þarf alltaf að koma vont verður þegar maður er búin í prófunum! :(


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 15:17:11 / Magga

PRÓFIN BÚIN!!

JÆJA þá eru prófin loksins búin :P finally segi ég nú bara... samt frekar skrítið finnst mér að þurfa ALDREI taka aftur próf í Versló aftur, ekki nema mar falli hehe;)

En TIL HAMINGJU! með að vera búnar í prófum og núna tekur bara gleðitímar við hjá okkur öllum, djamm og aftur djamm, sleikjandi sólina, og ströndin eftir rúmlega 2 vikur:haha: úje

en við verðum síðan að vera duglegar að taka myndir núna og setja inná síðuna til þess að eiga einhverjar minningar;) en já síðan er djammið hjá okkur á miðvikudaginn vá ég get ekki beðið eftir að fá að drekka bjór úff en Harpa það er bara einn og hálfur dagur þangað til þú getur andað léttar, þú massar bara stærðfræðina og kemur síðan á fellerí á mið;)

OG eitt eru það bara ég, Ragnhildur, Harpa og Erla sem verðum á miðv.? ætlaði bara svona tékka á ykkur hinum hvað planið er hjá ykkur? :) væri gaman að hittast allar :haha:

En jæja later,


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 14:26:57 / Kolbrún Ýr

Prófin

1 próf eftir!!!!!!!
 
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19